BESTU ÁKVARÐANIRNAR
ERU ÞÆR SEM ÞÚ NÝTUR

 

 

 

 


Lífið er ein ákvarðanataka. Ákvarðanir koma hreyfingu á hlutina. Þær breyta heiminum og lífi þínu. Að taka ákvörðun um að festa kaup á Octavia felur í sér ákvörðun um að kaupa aflmikinn bíl sem er ódýr í rekstri, umhverfisvænn, hagkvæmur fyrir fjölskylduna og vinnuna og sem kemur að góðum notum í frístundunum.

Niðurhal

Octavia bæklingur

    Octavia er einatt mjög sýnileg úti á vegum, þökk sé stórum afturljósum. Þegar þau lýsa mynda þau “C”-form sem er auðþekkjanlegt á öllum Škoda bílum.

    Ytra útlit

    Kraftalegur ferskleiki og um leið tímalaus hönnun Octavia tryggir að útlit bílsins verður ekki leiðingjarnt og hann verður laglegur áfram um mörg ókomin ár. Þetta á jafnt við um stallbaks- og skutbílsútfærsluna.

    Yfirbyggingin státar af lítilli loftmótstöðu sem stuðlar að lægri rekstrarkostnaði og betri hljóðeinangrun inni í bílnum. Octavia snýst ekki eingöngu um skynsamlegar ákvarðanir. Bílnum fylgja jákvæðar tilfinningar og kraftalegt útlit.

    Innra rými

    Það er stórkostlegt að keyra hann og yndislegt að sitja í honum. Glæsilegt, rúmgott og vel hannað innanrými Octavia skapar notalegt umhverfi fyrir alla sem ferðast í honum. Mælaborðið er skipulega uppsett og yfirborðið er gert með PU-tækni sem gerir það þægilegt viðkomu. Stjórnrofum er komið fyrir á skipulegan hátt. Fjöldi af sniðugum geymsluhólfum stuðla að auknum þægindum í ferðalögum. Octavia er fáanleg með fjölda gerða sætisáklæða í mörgum litum.