Superb fær toppeinkunnir fyrir stæðilegt útlit og mikið samræmi í hlutföllum. Afturhurðirnar eru þær stærstu sem framleiddar hafa verið fyrir Skoda bifreið. Fyrir vikið er allt aðgengi að aftursætunum með þægilegra móti. Glæsilegt form er á framhluta bílsins. Áberandi vatnskassahlífin er með krómumgjörð og innfellt í hana er Skoda merkið. Krómlistar umhverfis gluggarammana og innfelld stefnuljós í hliðarspeglunum gefa bílnum áberandi hliðarsvip. Afturljósin mynda C-laga form sem er einkennandi fyrir allar Skoda bifreiðar.