| |
Hönnunarmiðstöð
Hönnunarmiðstöð Skoda Auto er nútímaleg og um leið óhefðbundin bygging gerð úr gleri, steypu og stáli. Hún vekur eftirtekt án þess að vera of ríkjandi í umhverfi sínu. Hún er byggð í anda hinnar nýju byggingalistar, með samræmdu jafnvægi í burðargrind sem skapar einfaldleika, notagildi og í fullu samræmi við eiginleika sem Skoda er þekkt fyrir.
Rými byggingarinnar er aðskilið með færanlegum glerþiljum sem skapar tækifæri til margbreytilegs skipulags innanhúss. Þessi breytanleiki gerir hönnuðum og verkfræðingum kleift að einbeita sér að vinnu sinni án þess að fórna þurfi sjónrænum samskiptum við aðra vinnufélaga. Einsleitt samspil glers og steinsteypu myndar listræna andstæðu við litríkt starfsumhverfið. Hönnunarmiðstöðin fékk viðurkenninguna Bygging ársins árið 1999.
|
|
Ný kennileiti í arkitektúr
Fagleg teymi hönnuða, verkfræðinga og sérfræðinga á öðrum sviðum starfa hlið við hlið við þróun nýrra bílgerða fyrir Skoda í Hönnunarmiðstöðinni. Deild hönnuða styðst við teikningar og líkön til að hanna ytra útlit bílanna en sérfræðingar í innanrýmishönnun vinna að útfærslum á innanrýminu. Svo hægt sé að leggja raunsætt mat á hönnunina smíðar líkanasmiðjan líkön í fullri stærð úr leir sem eru nákvæmlega eins og raunverulegir bílar.
Lita- og áklæðadeildin hannar sætaáklæði, ákveður liti og önnur efni sem gefa innanrýminu viðkunnanlegt og þægilegt útlit. Starfsmenn CAD hönnunardeildarinnar gera líkön af íhlutum í tölvum, eins og t.d. stýri. Við það verða til rafræn gögn sem nýtt eru við smíði á íhlutum í Skoda. Deildin sér ennfremur um upplýsingastreymi til einstakra hönnunardeilda.
Hönnun Skoda bifreiða
Allar gerðir Skoda eru hannaðar í hönnunarmiðstöðinni í Mladá Boleslav. Hönnunin byggir á áratuga hefð tækniþekkingar ásamt samþættingu nýjustu þekkingar á sviði vísinda og ávallt með traustum stuðningi samstæðunnar. Í öllu ferlinu leita hönnuðir okkar eftir fullkomnun. Hver einasti dráttur í bílunum sem þeir skapa er yfirlýsing um þá ástríðu sem þeir hafa fyrir starfi sínu.
Hönnun Skoda á rætur sínar að rekja til hugmyndavinnu innan fyrirtækisins og rótgróinnar hönnunarstefnu þess. Í gegnum hönnunina eru dyggðir Skoda með sjónrænum hætti dregnar fram í sviðsljósið; nákvæmni, kraftur og hefð. Skoda bílar eru þess vegna samstundis auðgreinanlegir frá bílum keppinautanna.
Ríkjandi og frumleg vatnskassahlíf er eitt af helstu útlitsatriðum allra þriggja bílgerða Skoda og um leið skýr samnefnari fyrir vörumerkið.
Hönnunarferlið
Löngu áður en raunveruleg hönnun á nýjum bíl hefst hefur rannsókna- og þróunardeildin unnið með frumdrætti að fyrstu hugmynd hans. Fyrst þegar frumdrættir hönnunarinnar, sem byggjast á framleiðslulínum samstæðunnar, hafa verið teknir saman, er hægt að hefjast handa við útfærslu á heildarútliti bílsins. Á sama tíma og hugað er að sjálfri framleiðslulínunni er unnið að ýmsum rannsóknum og samanburðarathugunum á bílum keppinautanna, sem miðar að því að ná niðurstöðu um endanleg ytri og innri mál bílsins. Niðurstöðum þessara athugana er breytt í tölvugögn sem í framhaldinu eru notuð til þess að búa til líkön af bílunum úr leir.
Stöðug skoðun fer fram á líkönunum í tengslum við samspil hönnunar á ytra útliti, innanrými og umhverfis ökumanns, tæknilegs útbúnaðar og nálgun við gildandi reglugerðir. Í lokaferli hönnunar líkana er endanleg afurð búin til sem innifelur í sér allar mikilvægustu breyturnar í hönnun ytra og innra rýmis í þrívíðu líkani.
CAD hönnun
Hönnun með CAD-tækni, (Computer Assisted Design), felur í sér sköpun þrívíðrar tölvumyndar af ytra og innra útliti bíls. Þetta er skapandi ferill sem kallar á nákvæma samþættingu í öllu þróunarferli bílsins, bæði á sviði útlitshönnunar og tækni. Þegar líkan úr leir hefur fengið grænt ljós frá yfirstjórn fyrirtækisins er það nýtt sem undirstaða í tölvugerða mynd af bílnum. Mynd af honum er dregin upp í tölvunni eftir hugmyndum hönnuða með hliðsjón af frumdráttum og tæknilegum gögnum. Þess vegna er útkoman oft frábrugðin upprunalegum hugmyndum hönnuða.
Endanleg útkoma ræðst að miklu leyti af tilfinningu líkanasmiðsins fyrir rými og samvinnu hans og hönnuða og verkfræðinga. Líkön í stórum hlutföllum einfalda framsetningu á CAD-gögnum fyrir allan bílinn í sýndarveruleika sem um leið einfaldar allt mat á formum hans og greiðir jafnframt leið fyrir tillögur að breytingum. Í framhaldi af vinnslu á CAD-gögnum og samþykki þeirra eru þau notuð til að búa til svokallað gagnastýrt líkan í hlutföllunum 1:1. Það er síðan á grunni þessa líkans sem tekin er endanleg ákvörðun um form og útlínur bílsins að utan og innan.
|
|