Octavia RS er einn öflugasti og hraðskreiðasti bíllinn sem er fjöldaframleiddur af Škoda verksmiðjunum. Þrátt fyrir það er hann um leið þægilegt og öruggt ökutæki og vekur tilhlökkun þegar hann er borinn augum og ósvikna gleði þegar honum er ekið. Sportlegt andrúmsloft fylgir öllum hans hreyfingum og útliti.
2.0 lítra, 200 hestafla bensínhreyfillinn með strokkinnsprautun og 2.0, 170 hestafla dísilhreyfillinn með samrásarinnsprautun, forþjöppu og dæluspíssum, eru á meðal þeirra öflugustu í sínum flokki og veita sérhverjum ökumanni óblandna ánægju.