Frá október 2016 fylgir öllum nýjum fólksbílum Škoda fimm ára ábyrgð. Forsendur fyrir því að ábyrgð gildi er að bíllinn sé þjónustaður af viðurkenndum þjónustuaðila.
HEKLA hf., Laugavegi 174, Reykjavík, fyrir hönd Skoda, ábyrgist hina seldu bifreið, einstaka hluta hennar og hlutasamstæður (en: components) gagnvart efnis- og framleiðslugöllum er í ljós kunna að koma á ábyrgðartímanum, skv. nánari skilmálum í ábyrgðarskírteini þessu. Ábyrgðin tekur gildi á nýskráningardegi og varir í 24 mánuði frá þeim degi án aksturstakmarkana.
Að auki fylgir bifreiðinni skilyrt framlengd ábyrgð sem gildir til 60 mánaða aldurs frá skráningardegi, eða 100.000 km aksturs, hvort sem fyrr kemur. Hin framlengda ábyrgð nær til galla sem upp kunna að koma í bílnum að lakki undanskildu. Forsendur fyrir því að ábyrgðarframlengingin gildi er að bíllinn sé þjónustaður af viðurkenndum þjónustuaðila. Viðurkenndur þjónustuaðili er verkstæði sem stenst staðla Skoda.
Skilyrt ábyrgð til 36 mánaða er á göllum í lakki og/eða undirvinnu þess. Skilyrðin eru þau að í hverri þjónustuheimsókn er ástand lakksins skoðað og niðurstaða þeirrar skoðunar bókuð. Ráðlegging um nauðsynlegar viðgerðir eru settar fram ef við á.
Ábyrgðin bætir einungis viðgerðarkostnað (endurheimt fyrra ástands) og mögulegan flutning bifreiðar á þjónustuverkstæði sem HEKLA hefur viðurkennt, sé bilun þess eðlis að ekki sé unnt að aka bifreiðinni. Komi fram bilun á bifreiðinni á ábyrgðartímanum ber eiganda hennar að tilkynna það HEKLU eða næsta viðurkennda þjónustuaðila án tafar. Dráttur á að tilkynna bilun/meintan galla getur valdið frekari skaða og/eða ógildingu ábyrgðar á biluninni/gallanum.
Framleiðendur ábyrgjast yfirbyggingu bifreiðarinnar gagnvart gegnumryðgun í 12 ár með þeim skilyrðum, sem sett eru í ábyrgðarskilmálum þessum. Gegnumryðgun er skemmd af völdum ryðs sem byrjar á innri hlið yfirbyggingar og endar með sýnilegri skemmd, eða gati á ytri hlið.
Undantekningar frá ofangreindum skilmálum eru sem hér segir, en nánari upplýsingar gefur HEKLA og viðurkenndir þjónustuaðilar:
Skyldur kaupanda og takmarkanir á ábyrgð seljanda:
Til þess að viðhalda ábyrgð bifreiðarinnar er kaupanda skylt að færa hana reglulega til þjónustueftirlits hjá viðurkenndum þjónustuaðila sem þjónustar bílinn samkvæmt fyrirmælum sem gefin eru í þjónustubókinni (en: Service Schedule) sem fylgir bílnum. Þjónustuaðgerðir viðurkennds þjónustuaðila eru skráðar í gagnagrunn Skoda, „Digital Service Schedule“.
Við afbrigðilega notkun getur verið nauðsynlegt að líta eftir vissum þáttum með skemmra millibili en sýnt er í þjónustuhandbókinni, t.d. loftsíu, tímareim, olíur og sótagnasíu. Brýnt er að allt eftirlit, einnig smureftirlit, sé í höndum vottaðs Skoda þjónustuaðila sem hefur yfir réttum upplýsingum og réttum tækjabúnaði að ráða. Seljandi áskilur sér rétt til að hafna bótakröfum ef þessu atriði er ekki fullnægt.
Með afbrigðilegri notkun er átt við eftirfarandi:
Ábyrgðin takmarkast eða fellur úr gildi að fullu:
Njóttu bílsins þíns á hagkvæman hátt